Ari Freyr og Isabella
Ari Freyr og Isabella

Febrúar 2012

0 | 0 | Fyrir 2 vikum #
  • Skipti um deild á leikskólanum. Fór af Revehiet og yfir á Bikuba Isabella 3 ára
  • 2.ára ; Talar rosalega mikið, næstum jafnvíg á norsku og íslensku Isabella 3 ára
  • 14.mán. Telur með Ara Frey; ein, fjoi, sjuuu, díuuuu Isabella 3 ára
  • 13.mán. Skilur rosalega mikið af orðum og getur gert ýmislegt en segir ekki mikið Isabella 3 ára
  • Vinkar 10.mánaða Isabella 3 ára
  • Það liður 4 dagar frá því að Bella fór að standa upp fyrir alvöru og þartil hún fór að taka skref með. Tæpl, 10m Isabella 3 ára
  • 9,5m. farin að ulla á móti. Isabella 3 ára
  • 8,5m. farin að sofna sjálf í sínu rúmi Isabella 3 ára
  • 8.mánaða hætt á næturpela og farin að sofa alla nóttina;) Isabella 3 ára
  • 6m farin að sitja með púða í kringum sig. Dettur ekki oft:) Isabella 3 ára
  • fór í fyrsta skiptið í sund 5m3v rosalega gaman og kúkaði í sundbolinn:) Isabella 3 ára
 

Janúar 2012

0 | 0 | 12.1.2012 10:33:37 #

Fæðingarsaga Daníels Hrafns

Á jóladag fór ég að finna smá samdrætti en ekkert sem ég var að taka mark á, enda búin að vera með verki af og til í margar vikur. Þetta var síðasta kvöldið sem tengdó voru hjá okkur og við eyddum kvöldinu í kósý spjall og horfðum svo á Okkar eigin Osló, ný Íslensk mynd sem við fengum í jólagjöf.

Myndin kláraðist rúmlega 23 og þegar ég stóð upp heltust yfir mig brjáluðu verkir með 3 mín millibili, bara einn tveir og bingó. Pétur hringdi á fæðingardeildina og sagði að við værum að koma, enda minnst 30 mín akstur þangað í engri umferð.
Við vorum komin uppeftir rúmlega miðnætti og rosa stutt á milli verkja en ég er bara með 3 í útvíkkun!!       Ég var næstum farin að grenja.
Ég var þó ekki send heim þar sem að það var svo stutt á milli verkja.

Ég fer inná fæðingarstofuna og ræð vel við verkina og er í þokkalegu stuði til kl 1. Eftir það verður þetta rosalega erfitt, það er enginn pása á milli verkja og ég hélt í alvöru að ég væri að deyja því þetta er að gerast svo hratt. Gasið er í botni og ég er þvilíkt dofin í framan af því er það er ekki að slá á verkina, ég gef mig þó ekki og garga bara í grímuna.


Ég fæ pressuþörf og nokkrum mínútum seinna kemur höfuðið og svo kroppurinn. Hann er fæddur 02:13, ca tveim tímum eftir að ég kem uppeftir. Hann fæddist með hendina meðfram höfðinu og ég fann vel fyrir því. En ég þurfti engann saumaskap og var ég rosalega fegin því:) Daníel hrafn er fæddur í sigurkufli(belgnum) einsog Ari Freyr.

Hann fæddist 4615gr og 54cm. Ég bjóst við stóru og feitu barni en kannski ekki alveg rúmum 18 mörkum.

0 | 8.1.2012 18:46:10 #

Nú er ansi langt síðan það var eitthvað sett inn hérna.

Nýjasta nýtt er hann Daníel Hrafn. Hann kom í heiminn 26.desember 2011 kl 02:13. Hann ar 54cm og 4,6 kg. Fæðingin gekk mjög hratt en vel og ég mun setja inn fæðingarsöguna hans þegar ég man hvernig ég geri það ;)

0 | 8.1.2012 18:31:25 #

Jólin 2011

0 | 0 | 28.12.2011 18:21:16 #

Daníel Hrafn

0 | 0 | 28.12.2011 18:18:19 #

Okt-Nóv 2011

0 | 0 | 24.11.2011 09:33:17 #

Bumbinn

0 | 0 | 30.9.2011 17:42:31 #
Ég hætti með bleiu
Isabella - 2 ára